16. maí - Reykjavik Nights og Bedroom Community kynna: Tónleika Valgeirs Sigurðssonar og Sam Amidon í London 16. maí.Valgeir Sigurðsson hefur unnið sér nafn sem einn af helstu upptökustjórum landsins en hann sendi nýlega frá sér pötuna Ekvílibríum sem er hans fyrsta sólóplata. Áður hefur hann þó komið að gerð fjölda hljómplatna með ýmsum tónlistarmönnum, s.s. CocoRosie, Maps, Björk, Camille, Ane Brun, Sprengjuhöllinni, Múm, Reykjavík! og Bonnie 'Prince' Billy, sem ljær Ekvílibríum söngrödd sína í tveimur laga plötunnar. Sam Amidon kemur frá New York, en hann er ættaður frá Vermont í Bandaríkjunum. Sam flytur þjóðlög sem hann hefur oftar en ekki fært í nýjan búning. Plata hans All is Well kom út á vegum Bedroom Community um allan heim í febrúar á þessu ári og hefur hvarvetna verið vel tekið. Platan var tekin upp í Gróðurhúsinu í samstarfi við Nico Muhly, sem annaðist útsetningar, og Valgeir Sigurðsson, sem stýrði upptökum. Tónleikarnir, sem styrktir eru af Reykjavíkurborg og Iceland Express, verða haldnir í St. Barnabas kapellunni í Soho föstudaginn 16. maí. Miðaverð er 8 pund. House of Barnabas 1 Greek Street Soho Square London W1D 4NQ Kaupa miða: http://www.wegottickets.com/event/30907 Lesa meira: http://reykjaviknights.com/upcoming.html Reykjavik Nights and Bedroom Community present... Valgeir Sigurdsson+Sam Amidon at House of St Barnabas, Soho
Reykjavik Nights, the UK's only dedicated Icelandic music night, are pleased to announce a collaboration with the Bedroom Community record label in putting on a very special concert - Valgeir Sigurdsson at Soho's House of St Barnabas on Friday 16th May. The event is kindly support by Reykjavik City. Valgeir Sigurdsson first found recognition as the producer of Bjork's seminal Vespertine and Medúlla albums (he's worked on every one of her albums since), as well as Bonnie Prince Billy's critically-lauded The Letting Go. His forthcoming debut solo release, Ekvílibríum, has attracted similar critical acclaim, with comments such as "this is wonderful stuff" (The Times, 4/5) and "the strength of Ekvílibríum is in the organic way Sigurdsson weds the electronic to the human... The result is a singular album, as ornate as it is direct." (The Fader). Valgeir's European tour starts this summer and his appearance at Reykjavik Nights will be his only non-festival UK performance in the foreseeable future. Also performing will be fellow Bedroom Community artist Sam Amidon, an American folk singer who recorded his latest album All Is Well at Valgeir's Greenhouse Studios in Iceland. The album features a myriad of contributions from the likes of Ben Frost and Nico Muhley, about which US music bible Rolling Stone recently wrote "In an era of overheated Nick Drake comparisons, Amidon is eerily close to the real thing, singing in a fragile but certain tenor against the deep breath and soft sweep of Nico Muhly's orchestrations." (Rolling Stone, February 2008) The House of St Barnabas was founded in 1846 and attracts many visitors to its Georgian-era decor and stunning architecture. Located in the heart of Soho, it provides a perfect venue to host an intimate performance by one of Iceland's most important musicians. The house opens at 19:00 and the address is: House of Barnabas 1 Greek Street Soho Square London W1D 4NQ 17. maí - Vorhátíð Íslendingafélagsins og Íslensku kirkjunnar í LundúnumNæstkomandi laugardag, 17. Maí frá klukkan 12:00-14:00 verður vorhátíð Íslenska skólans, unglingahópsins, fermingarstarfsins og sunnudagaskólans haldin í Hyde Park (sama stað og síðustu ár, það er í suðaustur horni garðsins, gengið í gengum hliðið hjá Hyde Park Corner jarðlestarstöðinni og áfram um nokkur hundruð metra, sjá meðfylgjandi kort). Hátíðin hefst með skemmtiskokki fyrir unga sem aldna og er skokkleiðin um 450 metrar og þeir sem vilja skokka meira geta farið fleiri hringi.
Safnað verður áheitum fyrir íslenskt barn úr samfélaginu okkar, sem greindist nýverið með bráðahvítblæði og er nú til læknismeðferðar á sjúkrahúsi. Allur ágóði af hátíðinni rennur til viðkomandi og mun ættingi hans veita því sem safnast hefur viðtöku í lok hátíðarinnar. Eftir hlaupið verður farið í íslenska leiki. Um klukkan 13:00 mun Ingibjörg Þórðardóttir, fréttastjóri hjá BBC bjóða upp á gönguferð um garðinn og segja frá Lundúnum á sinn fræðandi og skemmtilega hátt og göngugörpum gefst tækifæri á að safna áheitum. Fólk er beðið að koma með nesti en á boðstólum verða vörur frá nokkrum íslenskum fyrirtækjum. Fyrirtækin Auðhumla, Góa, Glitnir, Mjólkursamsalan og Icelandic Glacial styrkja hátíðina. Ef rignir þá verður hlaupið og farið í gönguferðina en farið verður í leikina í nærliggjandi húsaskjóli. Allir eru hjartanlega velkomnir. Íslendingafélagið í London og Íslenski söfnuðurinn í London View Larger Map
24. maí - Eurovisionpartý!Laugardaginn þann 24. maí verður haldið Eurovisíonparty á The Old Explorer við Oxford Circus og munu Sverrir Stormsker og Alda Björk Ólafsdóttir koma og skemmta gestum. Sverrir er landsmönnum vel kunnur enda búinn að vera með mörg vinsæl lög í gegnum árin og má þar m.a. nefna Sókrates, Bless, Búum til betri börn, Horfðu á björtu hliðarnar, Hildur og Sigurlagið svo eitthvað sé nefnt. Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna á svæðið og gæða sér á ferskum samlokum en til sölu verða ekta íslenskar samlokur með roastbeef & remúlaði, rækjusalati, hangikjöti & baunsalati og svo eggi & grænmeti. Þá verða m.a. boðnar upp ferðir til Íslands með Flugleiðum og geta heppnir félagsmenn nælt sér í ódýra farmiða og einnig tekið þátt í happadrætti til styrktar félaginu en glæsilegir vinningar verða í boði. Ýmsar uppákomur munu eiga sér stað og mun allur ágóði af kvöldinu renna til styrktar félagsins. Húsið opnar klukkan 18:00 og barinn lokar kl 01:00. Athugið að salurinn tekur takmarkaðan fjölda af gestum og eru því allir þeir sem ætla sér að mæta á svæðið hvattir til þess að tryggja sér aðgengi með því að senda nafn sitt ásamt fylgdarliði til info@ifelag.co.uk sem fyrst The Old Explorer 23 Great Castle street Oxford Circus London, W1G 0JA
31. maí - Guðsþjónustur og messur framundan hjá Íslenska söfnuðinum í London- 31. maí, Íslensk ferming í Dómkirkjunni í Reykjavík, klukkan 13:00 fyrir fermingarbörn úr íslenska söfnuðinum í London.
- 14. júní verður hátíðarhelgistund í St. Lukes í Chelsea í London að venju í tengslum við 17. júní hátíðarhöldin (tímasetning nánar auglýst síðar).
Sunnudagskólinn verður að venju í öllum athöfnunum (nema 31. maí og 14. júní) í umsjón þeirra Sigríðar Óskar, Guðbjargar, Gauts, Friðþjófs og Braga og mikil gleði og stuð að venju. Íslenski kórinn í London syngur í öllum athöfnum undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur og sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar í ofangreindum athöfnum. Þau sem tækifæri hafa eru beðin um að koma með góðgerðir á kaffihlaðborð eftir viðkomandi guðsþjónustur og messur (nema 31. maí og 14. júní).
Íslenski kórinn í LondonKóræfingar hefjast aftur þriðjudagskvöldið 22. janúar n.k. frá klukkan 19:00-21:00 í sendiráðinu.Nýjir félagar eru hjartanlega velkomnir. Gísli Magnason hefur flutt til Danmerkur og við starfi kórstjóra tekur nú Þóra Hallgrímsdóttir. Allar nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á chaplain@mfa.is
|